- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sérsveitin verður á Hofbräuhaus í München

Frá samkomu Sérsveitarinnar á EM í Búdapest fyrir tveimur árum. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Sérsveitin, stuðningssveit HSÍ er mætt til München og ætla þau að tryggja að stemningin fyrir leiki Íslands á EM karla og meðan á þeim stendur verði frábær. Sérsveitin hefur í samstarfi við HSÍ skipulagt upphitun fyrir stuðningsmenn Íslands á Hofbräuhaus, í miðbænum, staðurinn er beint á móti Hard Rock. Þar verður komið saman í dag og einnig fyrir leikinn við Svartfellinga á sunnudaginn og þegar leikið verður við Ungverja á þriðjudag.

Andlitsmálun, treyjusala og sala á Íslands varningi verður í upphitun stuðningsmanna og hægt verður að kaupa mat og drykk á staðnum.

Veitingastaðurinn er frátekinn fyrir Íslendinga frá kl.12 á leikdögum.

Sérsveitin verður á staðnum og sölubásarnir opnir:
12. janúar 13:00 – 15:00.
14. janúar 13:00 – 15:00.
16. janúar 15:00 – 17:00.

Þegar að upphitun stuðningsamanna lýkur þá færist fjörið í Ólympíuhöllina.

Til þess að komast þangað frá upphitunarstaðnum er best að taka underground lest sem heitir U3 beint frá Marienplatz og upp að Olympiazentrum

Hér er linkur á staðsetninguna á fanzone fyrir utan Ólýmpíuhöllina þar sem leikið verður:

https://maps.app.goo.gl/qdWXg2jSSSEYeW1t8?g_st=ic

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -