- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Signý framlengir við Fjölni

- Auglýsing -

Signý Harðardóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Fjölni. Hún er 18 ára gömul og leikur sem vinstri hornamaður.

„Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að leggja mig fram um að gera betur í dag en í gær. Það er kraftur í hópnum og ég trúi því að við eigum eftir að gera góða hluti saman,“ sagði Signý í samtali á heimasíðu Fjölnis.


„Hún er baráttuglöð á vellinum og leggur sig alltaf fram fyrir liðið, bæði í vörn og sókn. Fjölnir bindur miklar vonir við áframhaldandi þróun Signýjar á komandi tímabilum.

Það eru góð tíðindi fyrir Fjölni að Signý hafi framlengt samning sinn og hlökkum við til að sjá meira af henni í gulu á komandi tímabili,“ sagði meðal annars í frétt handknattleiksdeidlar Fjölnis.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -