- Auglýsing -
- Auglýsing -

Systkini Arnars stofna minningarsjóð til eflingar ungu handboltafólki

Systkini Arnars sem standa að sjóðnum, f.v.: Sólveig Árnadóttir, Stefán Árnason og Samúel Ívar Árnason.
- Auglýsing -

Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara sem lést 3. mars 2023 var formlega stofnaður í dag, 2. apríl 2024. Það eru systkini Arnars sem standa að stofnuninni, en á þessum degi fyrir ári síðan fannst Arnar látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ.

„Við erum bæði stolt og hrærð á þessum degi þegar minningarsjóðurinn um Adda bróður er stofnaður, honum til heiðurs og höldum við þannig minningunni, um góðan dreng og hans störf í þágu handboltans, á lofti,“ segir Samúel Ívar Árnason, bróðir Arnars í tilkynningu.

Sjóðnum er ætlað að styðja við unga og efnilega handboltaiðkendur sem stefna hátt, sem og að auka fræðslu til foreldra og forráðamanna barna í íþróttum. Sjóðurinn hefur sömuleiðis þann tilgang að heiðra minningu Arnars.

Hægt er að leggja inn frjáls framlög á reikning hjá Sparisjóði Höfðhverfinga þar sem Arnar var viðskiptavinur um árabil.

Minningarsjóður um Adda: 1187 05 255000 – kennitala: 6503241450.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -