Bennet Wiegert, þjálfari karlaliðs SC Magdeburg, er á meðal þeirra sem koma til greina sem arftaki Alfreðs Gíslasonar, þjálfara þýska karlalandsliðsins.
Samningur Alfreðs rennur út að HM 2027 í Þýskalandi loknu. Mótið fer fram í janúar og liggur ekki fyrir hvort hann haldi áfram eða hvort þýska handknattleikssambandið ráði einhvern í stað Alfreðs.
„Sú staðreynd að nafn mitt sé nefnt í þessu samhengi er mikið hrós. Ég fer ekki í felur með það að starfið hafi verið á óskalista mínum á einhverjum tímapunkti. Hins vegar á ég erfitt með að sjá það fyrir mér á þessari stundu.
Ég hef komið mér svo vel fyrir í Magdeburg og vil vera með hendurnar í svo mörgum hlutum hér. Við Alfreð eigum sérstakt samband og ég óska honum alls hins besta og hámarks árangri, sérstaklega á heimsmeistaramótinu á heimavelli, sem er okkur öllum svo mikilvægt,“ sagði Wiegert í samtali við Bild.
Alfreð þjálfaði Wiegert sem leikmann bæði hjá Magdeburg og síðar VfL Gummersbach. Wiegert þjálfar nú Ómar Inga Magnússon, Gísla Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson hjá verðandi Þýskalandsmeisturum Magdeburg.


