Fabian Wiede, hægri skytta hjá Füchse Berlín, viðurkennir að hafa ekki verið nægilega hreinskiptinn í samskiptum við Alfreð Gíslason, þjálfara þýska landsliðsins, en að þeir hafi rætt málin og að hann gæti átt afturkvæmt í liðið.
Wiede, sem er 32 ára, hefur ekki verið hluti af landsliðshópnum undanfarin ár. Dró hann sig til að mynda úr hópnum tvívegis fyrir stórmót.
Í samtali við Handball World sagði Wiede aðalástæðuna fyrir því vera fjölskylduna sína, þar sem erfiðleikar hafi fylgt fjölskyldulífinu eftir að hann og eiginkona eignuðust sitt fyrsta barn fyrir nokkrum árum.
„Ég áttaði mig á því að hlutirnir voru ekki að ganga nægilega vel heima við. Þess vegna ákvað ég að einblína á fjölskyldulífið. Það sögðu margir: „Hann vill ekki spila fyrir landsliðið.“ Kannski á það fólk ekki fjölskyldu eða skilur ekki hvað liggur að baki,“ sagði Wiede.
Var ekki opinskár og heiðarlegur
Önnur ástæða sem Wiede gaf upp voru samskiptaörðugleikar, sem hafi gert samband hans við Alfreð erfitt. Þegar Wiede dró sig úr lokahópnum fyrir HM 2023 sagði hann ástæðuna vera tannskurðaðgerð.
„Það var alveg líka mikilvægt en náði ekki yfir allt málið. Ég vildi ekki setja pressu á fjölskylduna mína og tók allt saman á mínar herðar.
Ég held að hann hafi verið ósáttur við að ég hafi ekki verið opinskár og heiðarlegur og að við höfum ekki reynt að finna lausnir saman,“ sagði Wiede um Alfreð. Þeir hafi þó rætt málin síðan.

„Við erum búnir að útskýra okkar hliðar og við vitum hvar við höfum hvorn annan. Ég get einungis beðist afsökunar aftur og aftur að ég hafi ekki verið opnari með þetta, og það hef ég gert. En ég held að þetta sé allt að baki okkur núna,“ sagði hann.
Alfreð tekur þá ákvörðun
Wiede jafnar sig nú á alvarlegum hnémeiðslum en hann sleit krossband í október síðastliðnum. Wiede kvaðst hafa rætt við Alfreð um mögulega endurkomu í landsliðið stuttu áður en hann meiddist en skilur ef íslenski þjálfarinn vill halda áfram að reiða sig á aðra leikmenn.0
„Ég sagði Alfreð að fyrstu tvö til þrjú árin voru mjög erfið. Hlutirnir eru afslappaðri núna, sonur minn er eldri og konunni minni líður betur.
Því hef ég verið reiðubúinn frá því eftir 2023. Ég ætla samt ekki að segja að ég sé kominn aftur. Alfreð tekur þá ákvörðun sem hann telur vera þá réttu,“ sagði Wiede.


