Nú þegar það eru aðeins tvær umferðir eftir af riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handknattleik er spennan heldur betur farin að magnast. Þrettánda umferð fer fram um helgina þar sem að baráttan um sæti í útsláttarkeppninni verður í hámarki í A-riðli og farseðillinn beint í 8-liða úrslitin er undir í B-riðli.
Leikir helgarinnar
A-riðill:
FTC – Bietigheim | Laugardagur kl 15 | Beint á EHFTV
- Ef FTC sigrar í þessum leik þá tryggir liðið sér sæti í útsláttarkeppninni.
 - Þýska liðið hefur ekki unnið í sjö leikjum í röð.
 - Bietigheim hefur tapað síðustu fjórum útileikjum sínum og er í hættu að missa af sæti í útsláttarkeppninni þrátt fyrir að hafa farið vel af stað í haust og haft betur í fyrstu fimm leikjum sínum.
 - Aniko Cirjenics-Kovacsics miðjumaður FTC mætti aftur á völlinn um síðustu helgi eftir axlarmeiðsli og barnsburð. Hún var frá keppni í 668 daga.
 - Ungverska liðið endurheimtir einnig í dag Katrinu Klujber en hún gat ekki tekið þátt í síðasta leik vegna meiðsla.
 
Vipers – Krim | Laugardagur kl 17 | Beint á EHFTV
- Krim getur enn náð inn í útsláttarkeppnina en á erfitt verkefni fyrir höndum í síðustu tveimur umferðunum. Liðið mætir Vipers núna um helgina og CSM Búkaresti eftir viku.
 - Ríkjandi meistarar í Vipers eru í öðru sæti riðilsins sem stendur en takist liðinu að jafna CSM að stigum mun liðið hafna í efsta sæti vegna hagstæðra úrslita í innbyrðis viðureignum.
 - Markéta Jerabkova leikmaður Vipers hefur jafnað sig af meiðslunum sem komu í veg fyrir að hún lék með liðinu í síðasta mánuði.
 - Ef slóvenska liðið nær að vinna leikinn verða það aðeins þriðja liðið til þess að sigra í 130 leikjum í Meistaradeildinni.
 
Banik Most – Odense | Sunnudagur kl 15 | Beint á EHFTV
- Danska liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð en tekist að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni með einu stigi úr leiknum við Banik Most.
 - Tékkneska liðið hefur tapað öllum þremur viðureignunum gegn dönskum andstæðingi, tveir tapleikir fyrir Esbjerg og einn gegn Odense.
 - Ef Most tapar leik þá munu þær jafna met Krim 2014 og október 2015 sem tapaði 16 leikjum í röð.
 - Aðeins tvö lið hafa fengið á sig meira en 400 mörk á þessari leiktíð, Kastamonu með 403 mörk og Most 494.
 
CSM Búkaresti – Brest | Sunnudagur kl 15 | Beint á EHFTV
- CSM hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum og getur unnið riðilinn með því að fá einu stigi meira en Vipers úr tveimur síðustu leikjunum.
 - Franska liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð og mun tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni ef það vinnur þennan leik og Bietigheim fyrir FTC.
 - Cristina Neagu vinstri skytta CSM hefur nú skorað 90 mörk í Meistaradeildinni í vetur og vantar aðeins 10 mörk til þess að skora 100 mörk fimmta tímabilið í röð.
 - Franska liðið hefur fengið á sig fæst mörk í riðlinum, 312.
 
| Staðan í A-riðli: | ||||||
| CSM Búkaresti | 12 | 10 | 1 | 1 | 383 – 328 | 21 | 
| Vipers | 12 | 9 | 1 | 2 | 384 – 313 | 19 | 
| Odense | 12 | 7 | 0 | 5 | 336 – 326 | 14 | 
| FTC | 12 | 5 | 1 | 6 | 351 – 326 | 11 | 
| Brest | 12 | 5 | 1 | 6 | 318 – 312 | 11 | 
| Bietigheim | 12 | 4 | 2 | 6 | 362 – 335 | 10 | 
| Krim | 12 | 5 | 0 | 7 | 340 – 343 | 10 | 
| Banik Most | 12 | 0 | 0 | 12 | 303 – 494 | 0 | 
B-riðill:
Lokomotíva Zagreb – Storhamar | Laugardagur kl 15 | Beint á EHFTV
- Storhamar getur tryggt sér sæti í útsláttarkeppninni komist það hjá því að tapa þessari viðureign.
 - Lokomotíva er með yngsta leikmannahópinn í Meistaradeildinni.
 - Lokomotíva hefur samið við Mela Mehmedovic frá félaginu Mrnar 07. Hún er yngri systir Majda Mehmedovic leikmanns Kastamonu. Báðar leika þær í vinstra horninu.
 
Metz – CSM Rapid Búkaresti | Laugardagur kl 17 |Beint á EHFTV
- Ef Metz tekst að leggja Rapid að velli verður liðið fyrst þeirra sem skipa B-riðil til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum. Um leið þarf Rapid að treysta á önnur úrslit til þess að eiga möguleika á sætinu.
 - Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 32 – 32, eftir frábæra endurkomu Rapid í seinni hálfleik.
 - Bæði lið eru á meðal fimm bestu sóknarliða Meistaradeildarinnar. Rapid hefur skorað 31,6 mörk að meðaltali í leik en Metz 30,6.
 
Esbjerg – Buducnost | Laugardagur kl 17 | Beint á EHFTV
- Buducnost hefur nú þegar tryggt sér farseðilinn í útsláttarkeppnina.
 - Með sigri heldur Esbjerg í vonina um að ná sæti beint í 8-liða úrslit.
 - Esbjerg vann fyrri leik liðanna í september, 28 – 23, þegar Henny Reistad skoraði 10 mörk.
 - Armelle Attingré markvörður Buducnost hefur varið flest skot í Meistaradeildinin, 146, sem gerir 32,52% markvörslu.
 
Kastamonu – Györ | Sunnudagur kl 13 | Beint á EHFTV
- Ef Kastamonu tapar þessum leik er möguleiki á sæti í útsláttarkeppninni úr sögunni.
 - Györ vann fyrri leik liðanna, 44 – 25.
 - Þriggja leikja sigurgöngu Györ lauk í síðustu umferð gegn Metz. Kastamonu hefur hins vegar aðeins tekist að vinna í einum leik á þessari leiktíð, gegn Lokamotíva í fimmtu umferð.
 - Györ er með besta varnarliðið í Meistaradeildini. Liðið hefur aðeins fengið á sig 292 mörk til þessa, 24,3 mörk að meðaltali í leik.
 
| Staðan í B-riðili: | ||||||
| Metz | 12 | 10 | 1 | 1 | 367 – 294 | 21 | 
| Györ | 12 | 9 | 0 | 3 | 376 – 292 | 18 | 
| Esbjerg | 12 | 9 | 0 | 3 | 397 – 318 | 18 | 
| Rapid | 12 | 8 | 2 | 2 | 380 – 346 | 18 | 
| Buducnost | 12 | 5 | 1 | 6 | 316 – 336 | 11 | 
| Storhamar | 12 | 3 | 0 | 9 | 322 – 358 | 6 | 
| Kastamonu | 12 | 1 | 1 | 10 | 314 – 403 | 3 | 
| Lokomotív | 12 | 0 | 1 | 11 | 232 – 357 | 1 | 



