- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tveir nýliðar í hópnum hjá Alfreð

- Auglýsing -

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, hefur tilkynnt hvaða 17 leikmenn munu taka þátt í tveimur vináttulandsleikjum gegn Danmörku um miðjan næsta mánuð. Tveir nýliðar eru í hópnum.

Nýliðarnir tveir eru Moritz Sauter, liðsfélagi Einars Þorsteins Ólafssonar hjá HSV Hamburg, og Vincent Büchner leikmaður ThSV Eisenach.


Jannik Kohlbacher, Rune Dahmke, Lukas Mertens og Julian Köster eru allir frá vegna meiðsla en stór nöfn á við Andreas Wolff, Juri Knorr, Renars Uscins og fyrirliðann Johannes Golla eru á sínum stað í leikmannahópnum hjá Alfreð.

Fyrri leikurinn fer fram í Royal Arena í Kaupmannahöfn 15. maí og síðari leikurinn í Lanxess Arena í Köln 17. maí. Erfitt verkefni bíður Þjóðverja enda Danir ríkjandi Evrópu-, ólympíu- og heimsmeistarar.

Leikmannahópurinn:

Markverðir:
David Späth (Rhein-Neckar Löwen)
Andreas Wolff (THW Kiel)

Aðrir leikmenn:
Vincent Büchner (ThSV Eisenach),
Tim Freihöfer (Füchse Berlín),
Mathis Häseler (VfL Gummersbach),
Lukas Zerbe (THW Kiel)
Marko Grgic (SG Flensburg-Handewitt),
Tom Kiesler (VfL Gummersbach),
Juri Knorr (Aalborg Håndbold),
Matthes Langhoff (Füchse Berlín),
Nils Lichtlein (Füchse Berlín),
Moritz Sauter (HSV Hamburg),
Miro Schluroff (VfL Gummersbach),
Franz Semper (SC DHfK Leipzig),
Renars Uscins (TSV Hannover-Burgdorf),
Justus Fischer (TSV Hannover-Burgdorf),
Johannes Golla (SG Flensburg-Handewitt).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -