- Auglýsing -
- Auglýsing -

U20 ára landsliðið með heimaliðinu og Afríkumeisturunum í riðli á HM

U19 ára landslið kvenna sdm tók þátt í EM í fyrra skipar að uppistöðu til U20 ára landsliðið sem tekur þátt í HM í sumar. Mynd/EHF/Marius Ionescu
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, dróst í riðil með Afríkumeisturum Angóla, Norður Makedóníu og Bandaríkjunum á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Skopje í Norður Makedóníu frá 19. til 30. júní í sumar. Dregið var í riðla fyrir hádegi í Þýskalandi.

Sjá einnig: U18 ára landsliðið mætir andstæðingum frá EM í fyrra á HM í sumar

Alls taka 32 landslið þátt í mótinu og voru þau dregin í átta riðla með fjórum liðum í hverjum. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki af fjórum.

Að riðlakeppninni lokinni komast tvö efstu lið hvers riðils áfram í baráttuna í efri hlutanum. Tvö neðstu fara í kapphlaup um forsetabikarinn.

Riðlaskiptingin:

A-riðill:E-riðill:
RúmeníaSvíþjóð
HollandTékkland
BrasilíaKína
ÍranAlsír
B-riðill:F-riðill:
SvissFrakkland
EgyptalandÞýskaland
TúnisSpánn
Chile(wild card)
C-riðill:G-riðill:
UngverjalandPortúgal
Suður KóreaSvartfjallaland
ArgentínaGínea
MexíkóÚsbekistan
D-riðill:H-riðill:
DanmörkAngóla
NoregurN-Makedónía
JapanÍsland
TaívanBandaríkin

Landsliðið hefur verið valið

Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson þjálfarar U20 ára lands kvenna völdu fyrir nokkru síðan hópinn sem tekur þátt í undirbúningi fyrir mótið og síðan þátttöku á því. Hópinn er að finna í fréttinni hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -