- Auglýsing -
- Auglýsing -

Um 100 stúlkur og konur taka þátt í æfingaviku kvennlandsliða HSÍ

Hildur Þorgeirsdóttir fyrrverandi atvinnukona í handknattleik og landsliðskona flutti erindi fyrir landsliðskonur framtíðarinnar. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Þessa dagana eru öll okkar kvennalandslið HSÍ við æfingar eða keppni. Metnaðurinn er mikill í starfinu, en um 100 stelpur voru valdar í verkefnið og eru nú við æfingar hjá sínum landsliðum. Það er óhætt að segja að uppgangurinn og áhuginn sé mikill og efniviðurinn svo sannarlega til staðar. Stelpurnar leggja sig alla fram á æfingunum og viljinn og metnaðurinn hjá þeim til fyrirmyndar, segir í tilkynningu HSÍ.

Í fyrradag komu allir leikmennirnir saman og hlustuðu á fyrirlestra frá fjórum af landsliðsþjálfurunum, borðuðu svo saman að þeim loknum og héldu svo á landsleikinn á milli Íslands og Svíþjóðar síðar um kvöldið.


Fyrirlestrarnir sem í boði voru:
Markmiðssetning, hvernig setur þú þér markmið og framfylgir þeim?
Umsjón: Árni Stefán Guðjónsson & Díana Guðjónsdóttir.

A-landsliðskona / atvinnumennska, hvað þarf til?
Umsjón: Hildur Þorgeirsdóttir & Rakel Dögg Bragadóttir.

Æfingar liðanna byrjuðu á fimmtudag og standa að auki yfir helgina.

Framundan eru eftirfarandi verkefni:
U20 ára landsliðið tekur þátt á HM í Makedóníu í júní.
U18 ára landslið tekur þátt á HM í Kína í ágúst.
U16 ára landslið tekur þátt á opna Norðurlandamótinu í Svíþjóð í júlí.
Að auki æfir U15 ára landsliðið, sem eingöngu tekur þátt í æfingum að þessu sinni.

Sem fyrr er von á kvennaliðum Færeyja í heimsókn í byrjun júní. Þá fara fram vináttuleikir hér á land sem verða undirbúningur fyrir verkefnin sem framundan eru.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -