Unglingalið Vals skipuð leikmönnum fæddum árið 2008 gerðu það svo sannarlega gott á Norden cup félagsliðamótinu í Svíþjóð en því lauk í dag. Piltarnir unnu mótið og koma heim með gullverðlaun og stúlkurnar með silfurverðlaun eftir naumt tap í hörku viðureign í úrslitum.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2022/12/received_453988403614231-1024x768.jpeg)
Stlepurnar töpuðu úrslitaleiknum, 16:14, fyrir Rødekrog frá Danmörku. Hrafnhildur Markúsdóttir og Laufey Helga Óskarsdóttir fengu viðurkenningu í leikslok en þær þótt skara fram úr í Valsliðinu.
Piltarnir í Valsliðinu unnu alla sína leiki. Þeir höfðu talsverða yfirburði í úrslitaleiknum við sænska liðið Torslanda, lokatölur, 26:15.
Jóhann Ágústsson og Gunnar Róbertsson fengu viðurkenningu í leikslok fyrir að skara fram úr. Báðir eiga þeir ekki langt að sækja handknattleikshæfileikana.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2022/12/20221230_164522-768x1024.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2022/12/received_1140416010009664-768x1024.jpeg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2022/12/322102691_447803537401642_9051632255934872864_n-768x1024.jpg)
Fleiri íslensk félagslið tóku þátt í Norden cup. Eftir því sem næst verður komist gekk þeim vel.
Norden cup er óopinbert Norðurlandamót félagsliða og á sér langa sögu. Piltalið frá FH vann mótið fyrir meira en hálfum öðrum áratug.