- Auglýsing -
- Auglýsing -

Vængir Júpíters: Viljum leiðrétta rangyrði

- Auglýsing -

Handbolta.is hefur borist neðangreind fréttatilkynning frá formanni Handknattleiksdeildar Vængja Júpíters vegna máls sem hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu vikur, jafnt í fjölmiðlum og fyrir dómstóli Handknattleikssambands Íslands vegna leiks Vængja Júpíters og Harðar í Grill 66-deild karla laugardaginn 20. febrúar 2021.

Reykjavík, 23. mars 2021

Vegna dóms dómstóls Handknattleikssambands Íslands og umfjöllunar í fjölmiðlum.

Stjórn Handknattleiksdeildar Vængja Júpíters, hér eftir HVJ, harmar þá umfjöllun sem hefur átt sér stað í þessu máli og er það okkar von að allir sem hafa fylgst með því taki sér tíma til að lesa þessa yfirlýsingu og mynda sína eigin skoðun í stað þess að fylgja blint því einhliða sjónarmiði sem hefur ráðið ríkjum.

Með heilindi handboltans í huga ákvað HVJ að leyfa þessu máli að ganga sinn gang hjá Handknattleikssambandi Íslands, hér eftir HSÍ. Eins og koma mun fram ákváðu aðrir málsaðilar að ekki yrði gefinn vinnufriður í þessu máli heldur fóru af stað með yfirlýsingar uppfullar af rangyrðum, meiðyrðum og ásökunum sem eiga ekki við nein rök að styðjast. Þar sem málinu er nú lokið, af hálfu Dómstóls HSÍ, hefur HVJ ákveðið að leiðrétta þessi rangyrði.

Þann 22. febrúar mættust Vængir Júpíters, hér eftir VJ og Hörður í leik í Grill 66 deild karla. Eftir 13 mín. leik kom í ljós að lið Harðar var að spila á leikmanni sem var ekki skráður á skýrslu og í kjölfar var leikmanni vikið af velli og sýnt rautt spjald. Eftir leik þá gerði bæði eftirlitsmaður og HVJ athugasemd við þetta. Það er brot á reglum um mótamál að spila með óskráðan leikmann og skv. reglum tapast sá leikur 10-0 ef slíkt gerist. Það eru fordæmi fyrir máli sem þessu á síðustu árum og nú síðast 2017 þegar Gróttu var dæmdur 10-0 sigur gegn Stjörnunni í meistaraflokki kvenna.

Í yfirlýsingu Harðar þann 22. febrúar er fullyrt að ritari leiksins hafi fengið afhentan leikmannalista frá forsvarsmanni Harðar fyrir leik. Svo var ekki raunin og var það í raun starfsmaður Harðar sem sá um að fylla út hlut Harðar á leikskýrslunni. Í tvígang var starfsmönnum Harðar bent á að aðeins 15 leikmenn væru á skýrslu og í bæði skiptin sögðu þeir að það ætti að vera þannig. Skýrslan var staðfest af starfsmanni A fyrir leik og einnig bætti Hörður við 16. leikmanninum fyrir leik en það var ekki umræddur leikmaður sem skv. forsvarsmönnum Harðar á að hafa vantað á leikskýrsluna. Allt þetta var staðfest af eftirlitsmanni leiksins.

Samkvæmt úrskurði mótanefndar þá var atburðarásin sem Hörður lagði fram vegna málsins ekki rétt. Ekki var um sameiginleg mistök HVJ og Harðar að ræða eins og þeir lögðu fram heldur var ábyrgðin þeirra og dæmdi mótanefnd því HVJ 10-0 sigur.

Forsvarsmenn Harðar voru ósáttir við úrskurð mótanefndar og ákváðu að kæra hann til Dómstóls HSÍ. Í stað þess að gera annmarka á rökum úrskurðs mótanefndar þá var kæra Harðar byggð á því að kennitala HVJ hafi verið afskráð. Rök Harðar voru því þau að allir leikmenn HVJ væru ólöglegir sem og keppnisleyfið þar sem kennitalan væri ekki gild. Það kom bæði aðalstjórn VJ og HVJ í opna skjöldu að kennitalan var ekki skráð. Strax og okkur var bent á þetta með kæru Harðar var lögð inn krafa um leiðréttingu með aðstoð Ríkisskattstjóra. Í ljós kom að félagið hafði verið ólöglega afskráð þar sem ekki var haldin aðalfundur þess efnis né lá fyrir samþykki meirihluta aðalstjórnar félagsins. Í lögum VJ stendur að ef afskrá á félagið þarf meirihluti stjórnar að samþykkja ákvörðunina. Þar sem ekki var staðið rétt að afskráningunni var kennitalan í raun ekki afskráð og kennitalan því góð og gild og rök Harðar stóðu því ekki. Einnig kemur hvergi fram í reglum HSÍ um keppnisrétt að gild kennitala sé þörf til að fá keppnisrétt. VJ er skráð félag hjá ÍSÍ og hafa verið með lið síðustu 12 ár. Í dómnum segir jafnframt; „Þá hafa aðildarsambönd ÍSÍ, sem og ÍSÍ, ekki gert strangar kröfur hvað varðar skráningar aðildarfélaga og hefur félögum sem ekki hafa kennitölur verið heimiluð þátttaka innan ÍSÍ og sérsambanda“.

Forsvarsmenn Harðar hafa borið margar ásakanir á hendur starfsmanna og forsvarsmanna HVJ í tilraun sinni til að mála Hörð sem fórnarlamb í þessu máli og vill HVJ formlega vísa þeim öllum á bug. Þjálfarar HVJ kusu að ræða ekki málið við forsvarsmenn Harðar því það er ekki í þeirra verkahring og bentu þeir á netfang stjórnar HVJ sem forsvarsmenn Harðar höfðu aldrei samband við, hvorki fyrir, á meðan né eftir málaferlið. Ítrekaðar beiðnir til Harðar um að samskiptin færu fram rafrænt gegnum tölvupóst voru hunsuð og í stað fengu þjálfarar, stjórnarmenn og starfsmenn leiks símtöl og ítrekuð skilaboð á samfélagsmiðlum.

Forsvarsmenn Harðar vilja meina að HVJ hafi vitað af því að kennitalan hafi verið afskráð vegna þess að félagið notaði kennitölu Ungmennafélagsins Fjölnis, hér eftir Fjölnir, við sölu á árskortum. Það er einfaldlega ekki rétt að félagið hafi vitað af því, enda félagið verið starfandi frá 2009. Því hélt HVJ að allt væri í lagi með þau mál. Ástæðan fyrir að HVJ notaði kennitölu Fjölnis fyrir þessa sölu var vegna venslasamnings sem er milli félaganna. HVJ ítrekar að þetta fyrirkomulag er við aðalstjórn Fjölnis en ekki handknattleiksdeild Fjölnis.

Okkar einlæga ósk er að HSÍ fái frið til að vinna þetta mál en við gátum ekki setið á okkur lengur eftir að hafa heyrt af ósannindum um málið eins og um sannleik væri að ræða. Af okkar hálfu er þessu máli lokið enda hefur HSÍ, Ríkisskattstjóri og ÍSÍ staðfest að starfsemi okkar stenst allar reglur.

Dómstóll HSÍ | Niðurstöður í kærumáli nr 2/2021:
https://www.hsi.is/domstoll-hsi-nidurstodur-i-kaerumali-nr-2-2021/.

Fyrir hönd stjórnar HVJ,

Einar Ingi Kristinsson

Formaður.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -