Leikdagar viðureigna Vals og rúmenska liðsins CSA Steaua Búkarest í átta liða úrslitum Evrópubikarkeppninnar í handknattleik karla hafa verið negldir niður. Fyrri viðureignin fer fram í Concordia Hall Chiajna í Búkarest sunnudaginn 24. mars. Flautað verður til leiks klukkan 17.
Eins og kom fram þegar dregið var í átta liða úrslit fyrir nærri hálfum mánuði þá verður síðari leikur liðanna á heimavelli Vals. Ákveðið hefur verið að sprett verði úr spori í N1-höll Valsara við Hlíðarenda laugardaginn 30. mars klukkan 18, daginn fyrir páskadag.
Samanlagður sigurvegari leikjanna kemst í undanúrslit Evrópubikarkeppninnar eins og keppnin nefnist um þessar mundir. Valsmenn náðu í undanúrslit Áskorendabikarsins vorið 2017 en féllu úr leik fyrir AHC Potaissa Turda eftir skrautlega viðureign í Turda í Rúmeníu.
Heiti Áskorendabikarbikarsins var breytt yfir í Evrópubikarkeppnina fyrir fjórum árum árum. Enn lengra er síðan keppnin nefndist Borgarkeppni Evrópu.
Ef Valur kemst í undanúrslit mætir liðið annað hvort rúmenska liðinu Minaur Baia eða Bregenz frá Austurríki.
Undanúrslitaleikirnir fara fram tvær síðustu helgarnar í apríl.