- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valur er Íslandsmeistari í 3. flokki karla

Íslandsmeistarar Vals í 3. flokki karla. Efri frá vinstri. Heimir Ríkarðsson, Tryggvi Garðar Jónsson, Dagur Fannar Möller, Þorvaldur Örn Þorvaldsson, Hlynur Freyr Geirmundsson, Jóhannes Jóhannesson, Daníel Franz Davíðsson, Daníel Örn Guðmundsson, Ásgeir Theodór Jónsson, Ísak Logi Einarsson og Dagur Snær Steingrímsson. Neðri frá vinstri. Knútur Gauti Eymarsson Krüger, Breki Hrafn Valdimarsson. Haraldur Helgi Agnarsson, Guðmundur Imsland, Hilmar Már Ingason, Hinrik Örn Jóhannsson, Govand Zeravand, Aron Ingi Gunnarsson. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

Valur varð í kvöld Íslandsmeistari í 3. flokki karla í handknattleik. Valur vann Hauka í hörku úrslitaleik að Varmá í Mosfellsbæ, 34:32, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik.


Valsmenn voru lengst af með frumkvæðið í viðureigninni. Haukar gerðu hvað þeir gátu til að jafna metin undir lokin en allt kom fyrir ekki.


Breki Hrafn Valdimarsson, úr Val, var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins. Hann skoraði 12 mörk.

Breki Hrafn Valdimarsson, úr Val, var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins. Mynd/HSÍ


Mörk Hauka: Gísli Jóhannsson 8, Róbert Snær Örvarsson 6, Birkir Steinsson 5, Alex M. Júlíusson 3, Össur Haraldsson 3, Ásgeir Bryde Þórðarson 3, Andri Elísson 2, Steinar Logi Jónatansson 1, Egill Magnússon 1.

Mörk Vals: Breki Hrafn Valdimarsson 12, Dagur Fannar Möller 8, Ísak Logi Einarsson 5, Tryggvi Garðar Jónsson 4, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 2, Hlynur Freyr Geirmundsson 2, Daníel Örn Guðmundsson 1.


Leikmenn Íslandsmeistara Vals í 3. flokki karla eru: Guðmundur Imsland, Breki Hrafn Valdimarsson, Hlynur Freyr Geirmundsson, Tryggvi Garðar Jónsson, Daníel Örn Guðmundsson, Daníel Franz Davíðsson, Ísak Logi Einarsson, Ásgeir Theodór Jónsson, Jóhannes Jóhannesson, Dagur Fannar Möller, Knútur Gauti Eymarsson Krüger, Þorvaldur Örn Þorvaldsson, Haraldur Helgi Agnarsson, Hilmar Már Ingason.

Silfurlið Hauka á Íslandsmótinu í 3. flokki karla. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -