- Auglýsing -
Handboltaskóli HSÍ fór fram í 27. skiptið um nýliðna helgi í Kaplakrika í Hafnarfirði. Um 110 stúlkur og drengir fædd árið 2009 tóku þátt að þessu sinni en tilnefningar voru eins og undanfarin ár í höndum aðildarfélaga HSÍ.
Krakkarnir æfðu fjórum sinnum saman yfir helgina en í lok skólans var haldin fyrirlestur auk þess sem HSÍ bauð þátttakendum upp á hádegisverð.
Skólastjóri handboltaskólans er Jón Gunnlaugur Viggósson.
Markmannsþjálfarateymi HSÍ sá um séræfingar fyrir markmenn en auk þeirra komu þrautreyndir þjálfarar að verkefninu.
Fleiri myndir frá helginni er að finna á Facebook-síðu HSÍ.
- Auglýsing -