- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Verður Hafsteinn Óli með Grænhöfðaeyjum á HM? – nýkominn úr keppnisferð

Hafsteinn Óli Ramos Rocha leikmaður Gróttu gæti verið með landsliði Grænhöfðaeyja á HM í janúar. Ljósmynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Sterklega kemur til greina að Hafsteinn Óli Ramos Rocha leikmaður Gróttu leiki með landsliði Grænhöfðaeyja á heimsmeistaramótinu í handknattleik í janúar. Ef til þess kemur verður fyrsti leikurinn gegn íslenska landsliðinu í Zagreb 16. janúar. Hafsteinn Óli var á dögunum í keppnisferð á landsliðinu.

Kemur vel til greina

„Það kemur bara vel til greina að ég verði í hópnum en það skýrist betur í byrjun desember þegar hópurinn verður tilkynntur,“ sagði Hafsteinn Óli í samtali við handbolta.is í dag. Hann er skiljanlega mjög spenntur fyrir komandi vikum. Æfingar landsliðs Grænhöfðaeyja fyrir HM hefjast 26. desember.

Hafsteinn Óli var á dögunum í æfinga- og keppnisferð með landsliðinu til Kúveit þar sem hann tók þátt í þremur vináttulandsleikjum, gegn Barein, Túnis og Kúveit.

„Þetta var bara virkilega skemmtilegt og mér gekk vel. Lék um 30 mínútur í hverjum leik. Það var virkilega gaman að klæðast landsliðstreyjunni,“ sagði Hafsteinn Óli.

Eins kom fram í sumar fór Hafsteinn Óli til Grænhöfðaeyja til þess að hitta stjórnendur landsliðsins og ganga frá ríkisborgararétti til þess að eiga möguleika á því tækifæri að leika fyrir landsliðið sem er á meðal þeirra sterkustu í Afríku. Faðir Hafsteins Óla er frá Grænhöfðaeyjum.

Hafstenn Óli lék með yngri landsliðum Íslands. Hann gekk til liðs við Gróttu í sumar eftir þriggja ára veru hjá HK.

Grænhöfðaeyjar eru eyjaklasi í Norður-Atlantshafi, nærri 600 km undan vesturströnd Afríku og bera nafn sitt af höfða (Cap-Vert) á strönd Senegal

Sjá einnig:
Leikur nýbakaður Gróttumaður fyrir landslið Grænhöfðaeyja?

Hvar eru Grænhöfðaeyjar?

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -