Jonas Wille lauk störfum með norska karlalandsliðið í dag með því að sjá til þess að það tryggði sér farseðil á heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í upphafi næsta árs. Noregur vann Tyrkland í Ankara, 37:30. Norðmenn voru í góðri stöðu fyrir viðureignina því þeir unnu með 13 marka mun á heimavelli á miðvikudaginn, 43:30.
Wille lætur formlega af störfum sem landsliðsþjálfari Noregs í lok mánaðarins en honum stóð ekki til boða nýr samningur eftir fjögur ár í þjálfarastólnum. Wille tekur við þjálfun meistaraliðsins í Sviss, Kadetten Schaffhausen, í sumar.
Spánverjar unnu tvisar í Buenos Aires
Auk Norðmanna þá innsigluðu Spánverjar þátttökurétt sinn á HM í janúar með því að vinna Ísraelsmenn öðru sinni í Buenos Aires í kvöld, 36:29. Spánn vann einnig fyrri viðureignina sem einnig var leikin í Buenos Aires, 32:27.
Ákveðið var að leika utan Evrópu vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs auk þess sem Spánverjar höfðu takmarkaðan áhuga á að fá ísraelska landsliðið í heimsókn til Spánar.
Eins og handbolti.is sagði frá fyrr í kvöld þá verða Færeyingar með á HM karla í fyrsta sinn. Þeir lögðu Bosníumenn, 33:28, á heimavelli og samanlagt með sjö marka mun í tveimur leikjum.
Færeyingar á HM karla í fyrsta sinn
Sjö síðustu leikir umspilsins fara fram á morgun, sunnudag:
Holland – Grikkland (27:29).
Pólland – Austurríki (26:25).
Frakkland – Tékkland (37:26).
Slóvenía – Svartfjallaland (29:28).
Ungverjaland – Serbía (29:31).
Ítalía – Sviss (29:32).
Norður-Makedónía – Slóvakía (31:24).
-úrslit fyrri leikjanna eru innan sviga.


