- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grikkir sendu Hollendinga út í kuldann

- Auglýsing -

Grikkir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Hollendinga öðru sinni í umspili fyrir heimsmeistaramót karla í handknattleik í Rotterdam í dag, 38:33. Gríska liðið vann einnig fyrri viðureignina, 29:27, á heimavelli á miðvikudaginn. Þar með verður gríska landsliðið með á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar. Verður það í fyrsta sinn í 22 ár sem Grikkir eiga rétt á að tefla fram liði á HM karla í handbolta.

Sitja eftir með sárt ennið

Hollendingar sitja eftir með sárt ennið en þeir hafa verið fastagestir á flestum stórmótum á þessum áratug að Ólympíuleikunum undanskildum. Um leið er hætt við að dögum Svíans Staffan Olsson í stól landsliðsþjálfara fari mjög fækkandi.

Olsson tók við af Erlingi Richardssyni fyrir fjórum árum og hefur alls ekki náð að setja mark sitt á hollenska liðið.

Að sama skapi er um stóran áfanga að ræða fyrir gríska landsliðið sem aðeins hefur einu sinni tekið þátt í HM karla. Það var árið 2005 er HM fór fram í Túnis. Grikkir voru á þeim tíma með ágætt lið sem þjálfað var upp fyrir Ólympíuleikana 2004. Hafnaði gríska liðið í 6. sæti á HM 2005 og kom mörgum á óvart.

Með sínar helstu kempur

Hollendingar voru með flest alla sína sterkustu leikmenn í leikjunum við Grikki, m.a. Luc Steins, Kay Smits, Dani Baijens og Rutger ten Velde svo dæmi sé tekið.

Gríska liðið réði lögum og lofum í leiknum í Rotterdam og hafði m.a. sex marka forskot í hálfleik, 20:14. Dimitrios Panagiotou var markahæstur með sjö mörk og Evangelos Arampatzis skoraði sex mörk.

Robin Nagtegaal var markahæstur Hollendinga með sex mörk.

Kamil Syprzak línumaður pólska landsliðsins er mættur til leiks á ný eftir að hafa grafið stríðsöxina. Hér skorar hann eitt marka sinn í jafnteflisleik Pólverja og Austurríkismanna í Olsztyn í dag. Ljósmynd/EPA

Pólverjar áfram á kostnað Austurríkismanna

Pólverjar bættust einnig í dag í hóp þátttökuþjóða á HM karla á næsta ári. Pólland og Austurríki skildu jöfn, 30:30, í Olsztyn í Póllandi. Pólska landsliðið vann fyrri viðureignina í Graz í Austurríki á miðvikudaginn með eins marks mun, 26:25. Austurríkismenn verða þar af leiðandi ekki með á næsta heimsmeistaramóti.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -