„Þetta úrslitaeinvígi braut mig. Ég mætti samt. Íslandsmeistarar 2026,“ skrifar Hafdís Renötudóttir markvörður Vals og íslenska landsliðsins á Instagram-síðu sína í gær um þá fordóma sem hún mætti í öðrum úrslitaleik ÍBV og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum. Gerð voru fordómafull hróp að Hafdísi vegna kynhneigðar.
„Hinsegin fólk verður fyrir aðkasti á hverjum degi og ég er hvorki sú fyrsta né síðasta sem upplifir það,“ bætir Hafdís við og birtir með mynd af sér með gullverðlaunapening Íslandsmeistarans en Valur varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð.
HSÍ sektaði handknattleiksdeild ÍBV um 150 þúsund kr. vegna framkomu við Hafdísi sem „teljist vítaverð og ósæmileg“ eins og sagði m.a. í niðurstöðu aganefndar HSÍ sem bætti m.a. við: „Að veitast að leikmanni með vísan til kynhneigðar hennar er atlaga að mannlegri reisn leikmannsins og andstætt öllu því sem íþróttir standa fyrir.“
Sjá einnig:
ÍBV fékk 150 þús. kr sekt – framkoman er vítaverð og ósæmileg
HSÍ tekur í taumana vegna fordóma í garð Hafdísar í leik í Eyjum
ÍBV fordæmir alla mismunum og biður Hafdísi afsökunar



