- Auglýsing -
Landslið Rúmeníu og Færeyja mætast í lokaumferð F-riðils Evrópumóts 21 árs landsliða karla í handknattleik í Katowice í Póllandi. Flautað verður til leiks klukkan 9.45. Ef rúmenska liðið vinnur leikinn við Færeyinga á íslenska landsliðið möguleika á sæti í 16-liða úrslitum með stórum sigri á Norður Makedóníu í leik sem hefst klukkan 12.
Hér fyrir neðan er beint streymi frá viðureign Rúmeníu og Færeyja.
- Auglýsing -