- Auglýsing -
3.flokkur kvenna hjá Gróttu lauk leiktíðinni með ferð til Þýskalands. Ferðin var margslungin; æfinga-, spil- og skemmtiferð.
Fyrst var farið til Gummersbach þar sem æft var í tvo daga undir handleiðslu Guðjóns Vals Sigurðssonar, sem tók höfðinglega á móti stelpunum. Svo var spilaður æfingaleikur við lið Strombach/Gelpe, sem vannst 29:24.
Eftir þennan fyrri part var haldið yfir til Kölnar þar sem stefnan var sett á Final Four í Meistaradeildinni. Það reyndist mikil upplifun. Í brjálæðislegri stemningu (og hita) sáu stelpurnar Magdeburg (sem var augljóslega aðalliðið með tvo Íslendinga) vinna titilinn.
Skælbrosandi var svo haldið aftur heim til Íslands með góðar minningar af Gummersbach og Köln.
- Auglýsing -