Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Selfoss
Hin sænska handboltagoðsögn Ljubomir Vranjes kom í heimsókn í síðustu viku á æfingu hjá 4. flokki karla. Hann kom til landsins til að fylgjast með úrslitahelginni í bikarkeppninni. Þá nýtti hann einnig tímann til þess að kynna sér yngriflokkastarf deildarinnar á Selfossi. Athygli hefur vakið hversu margir Selfyssingar leika með landsliðinu og í atvinnumennsku og hefur hróður Selfoss farið víða.
Vranjes, sem er nú starfandi íþróttastjóri SG Flensburg í Þýskalandi, hefur komið víða við. Hann lék m.a. með Granollers á Spáni og Nordhorn í Þýskalandi; hann lauk ferlinum með Flensburg og tók við sem þjálfari liðsins að leikmannaferlinum loknum. Þá hefur hann einnig þjálfað m.a. lið á borð við Vezprém, Kristianstad, ungverska og slóvenska landsliðið. Hann á að baki 164 landsleiki fyrir Svíþjóð og skoraði í þeim 451 mark. Þá varð hann heimsmeistari og Evrópumeistari í þrígang með Svíþjóð auk þess að hafa unnið silfurmedalíu á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.
Strákarnir í 4. flokk stóðu sig vel á æfingunni og Vranjes fékk mynd af sér með stórstjörnum framtíðarinnar í lok æfingar.




