Sex síðustu leikir Olísdeildar karla fara fram í kvöld. Þrjú lið eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum fyrir lokaumferðina, Valur, FH og Haukar. Valsmenn eru í bestri stöðu sitjandi í efsta sæti með 32 stig. FH er stigi á eftir og Haukar tveimur stigum á eftir Val.
ÍBV, sem mætir Val, situr í fjórða sæti, einu stigi á undan KA sem sækir Þór heim. Afturelding er í sjötta sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV.
ÍR er neðst og þarf helst á sigri, alltént jafntefli gegn FH, til að forðast rakleitt fall úr deildinni vænta þess um leið að Stjarnan kræki ekki stig í leik við Fram sem á enn möguleika á að mjaka sér upp úr sjöunda sæti.
HK og Þór eiga bæði möguleika á áttunda sætinu og síðasta sæti í átta liða úrslitum.
Olísdeild karla, 22. umferð:
Hekluhöllin: Stjarnan – Fram.
Kórinn: HK – Haukar.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur.
Höllin Ak.: Þór – KA.
Sethöllin: Selfoss – Afturelding.
Kaplakriki: FH – ÍR.
- Allir leikirnir eiga að hefjast klukkan 19.30.
- Allir leikir verða sendir út á Handboltapassanum.
- Úrslitakeppni Olísdeildar karla hefsta 25. mars.
- Neðsta lið deildarinnar fellur.
- Næst neðsta liðið tekur þátt í umspili um áfram veru í deildinni.

Staðreyndir eftir leiki næst síðustu umferðar



