- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Elvar, Viktor, Elmar, Tjörvi, Sveinn

- Auglýsing -
  • Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar í stórsigri Ribe-Esbjerg á Nordsjælland, 37:26, á heimavelli í lokaumferð umspils neðstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Leikið var í Esbjerg. Elvar og félagar urðu í efsta sæti af fimm liðum umspilsins og tryggðu sér þar með örugglega sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
  • Fyrir leikinn í gær var Elvar valinn besti leikmaður Ribe-Esbjerg á leiktíðinni eins og fjallað er um hér.
  • Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot, 39%, þegar hann var í marki Barcelona annan hálfleikinn í sigri á Bada Huesca, 42:25, í spænsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Barcelona er sem fyrr efst í spænsku 1. deildinni með fullt hús stiga eftir 27 leiki. Nokkuð er síðan Barcelona tryggði sér meistaratitilinn.
  • Elmar Erlingsson skoraði eitt mark og gaf sex stoðsendingar í öruggum sigri Nordhorn á neðsta liði 2. deildar, HC Oppenweiler/Backnang, 37:32 á útivelli í gær. Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark fyrir HC Oppenweiler/Backnang og var einu sinni vikið af leikvelli.
  • Nordhorn er sem fyrr í sjötta sæti deildarinnar. Liðið hefur 36 stig að loknum 29 af 34 leikjum sem áformaðir eru. HC Oppenweiler/Backnang er heillum horfið með sín tvö stig og er langneðst.
  • Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir Chambéry þegar liðið vann Dunkerque, 32:28, í 25. umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Sveinn lék í 44 mínútur í leiknum. Chambéry situr í 5. sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Limoges sem er í fjórða sæti sem veitir þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Fimm umferðir eru eftir í frönsku 1. deildinni.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -