- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hinn mikilvægi þriðji úrslitaleikur stendur fyrir dyrum

- Auglýsing -

Valur og FH mætast í þriðja sinn í úrslitum Olísdeildar karla í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvíginu er 1:1 eftir að liðin hafa unnið sinn hvorn heimaleikinn til þessa.

Þriðji leikur úrslitaeinvígisins er oft talinn mikilvægastur þar sem sigurvegari hans stillir baki hins liðsins upp við vegg. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.


Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður sýndur í opinni dagskrá í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans. Handboltapassinn sýnir auk þess alla leiki úrslitakeppni Olísdeildarinnar. Þá má kaupa miða á leikinn á Stubbi.

Bæði lið hafa unnið alla heimaleiki sína í úrslitakeppninni til þessa og verður FH því að bregða út af vananum til þess að koma sér í kjörstöðu fyrir fjórða leik á heimavelli. Að öðrum kosti helst sama mynstur nái Valur yfirhöndinni.

Leikur kvöldsins

Olísdeild karla – úrslit, þriðji leikur:
N1 höllin: Valur – FH kl. 19.30

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -