- Auglýsing -
Gunnar Valur Arason, yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildi til næstu fjögurra ára.
Gunnar Valur hefur sinnt starfinu undanfarin ár og ríkir mikil ánægja með hans störf innan félagsins.
„Hann hefur reynst deildinni afar verðmætur starfskraftur og sinnt starfinu af mikilli fagmennsku og kostgæfni. Í starfi sínu hefur Gunnar lagt áherslu á markvissa uppbyggingu yngri flokka, faglegt þjálfunarumhverfi og skýra stefnu í þróun leikmanna.
Með áframhaldandi samstarfi við Gunnar er handknattleiksdeild Fjölnis að styrkja enn frekar þann grunn sem byggður hefur verið upp á síðustu árum,“ sagði meðal annars á heimasíðu Fjölnis.
- Auglýsing -



