- Auglýsing -
Fjórði leikur úrslitaeinvígis FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í kvöld klukkan 19.30 í Kaplakrika. Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir Val, sem getur því með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. FH þarf á sigri að halda til að knýja fram oddaleik í N1 höllinni á Hlíðarenda.
Bæði lið hafa unnið alla heimaleiki sína í úrslitakeppninni til þessa og verður FH að treysta á að það mynstur haldi sér, ellegar hampa deildarmeistarar Vals einnig Íslandsmeistarabikarnum.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans þar sem útsending hefst klukkan 19.15. Miða má nálgast á Stubbi.
Leikur kvöldsins
Olísdeild karla, úrslit – fjórði leikur:
Kaplakriki: FH – Valur kl. 19.30
- Auglýsing -



