Norðmaðurinn Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Kadetten Schaffhausen í Sviss. Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með Kadetten.
Wille var sterklega orðaður við starfið um helgina. Hann lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Noregs að loknum tveimur umspilsleikjum gegn Tyrklandi um miðjan mánuðinu og tekur svo við Kadetten af Hrvoje Horvat.
Verður Wille næsti þjálfari Óðins Þórs?
Wille skrifar undir tveggja ára samning við svissneska félagið og er því samningsbundinn til sumarsins 2028.
Kadetten er komið í úrslitaeinvígið um svissneska meistaratitilinn og mætir þar HC Kriens. Fyrsti úrslitaleikur í einvíginu fer ekki fram fyrr en eftir landsleikjahléið um miðjan mánuðinn, þann 24. maí.



