- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Brynjólfur Snær lætur gott heita

- Auglýsing -

Brynjólfur Snær Brynjólfsson, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann er 33 ára hægri hornamaður sem lék allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Haukum.

Brynjólfur Snær greindi frá tíðindunum í samtali við Handkastið. Hann varð bikarmeistari með liðinu í vetur og hafði áður fagnað Íslandsmeistaratitlinum með Haukum árin 2015 og 2016.

Adam Haukur hættur – lék með Haukum alla tíð


Varð Brynjólfur Snær fimm sinnum deildarmeistari með Haukum og fagnaði einnig bikarmeistaratili með liðinu árið 2014.

Alla þessa bikara vann hann við hlið Adams Hauks Baumruk, sem hefur einnig ákveðið að leggja skóna á hilluna 32 ára að aldri. Tveir gegnheilir Haukamenn hverfa því á brott fyrir næsta tímabil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -