Elísa Elíasdóttir, Eyjakonan í liði Vals, var að vonum hæstánægð eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á heimaslóðum hennar í Vestmannaeyjum í kvöld.
„Tilfinningin er ótrúlega góð. Eins og heyrist er ég gjörsamlega búin að missa röddina. En ég er svo glöð. Ég fann það á mér þegar ég vaknaði í morgun að við værum allar „on“ í dag. Þetta virkaði 100% í dag,“ sagði Elísa í samtali við Handboltapassann eftir leik.
Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð
Valur tapaði óvænt stórt í þriðja leik liðanna og voru liðsmenn því staðráðnir í að sigla titlinum í höfn í fjórða leiknum í kvöld.
„Við fórum vel yfir hlutina og hvað við gátum bætt. Það voru alls konar litlir hlutir sem var svo auðvelt að bæta og við náðum því í dag. Það er frábær tilfinning að geta komið svona upp úr lægðinni,“ sagði hún.
Leikmenn og teymi Vals fara ekki heim fyrr en á morgun og fagna því titlinum í Vestmannaeyjum. Spurð hvort hún muni stýra fögnuðinum í kvöld sagði Elísa að lokum:
„Jú ætli það ekki, sýna þeim hvernig á að djamma eins og alvöru Eyjamaður.“
Stolt af því að vera hérna
Hafdís Renötudóttir var sömuleiðis ánægð en á henni var að sjá að aðdragandinn að leiknum hafði tekið á. ÍBV var sektað fyrir ósæmilega hegðun stuðningsmanns sem lét ljót orð falla í garð Hafdísar á grundvelli kynhneigðar hennar í öðrum leik liðanna í Vestmannaeyjum.
„Mér líður ótrúlega vel. Við stóðum okkur vel og þetta var virkilega erfitt einvígi. Ég er stolt af okkur í dag. Við þurftum að grafa ansi djúpt til þess að sækja þetta. Ég er svo stolt af því að vera hérna í dag. Það er númer eitt og svo númer tvö er Íslandsmeistaratitillinn,“ sagði Hafdís við Handboltapassann.
Spurð hvernig Valskonur ætluðu að fagna í kvöld sagði Hafdís:
„Ég veit það ekki, bara knúsa medalíuna eða eitthvað.“



