Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er ekki á eitt sáttur við framkomu stuðningsmannasveitar ÍBV í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, og Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, urðu fyrir fordómum er lið þeirra komu í heimsókn í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í úrslitakeppninni.
Arnar tekur til máls á Facebook-síðu sinni og leggur út af ummælum Hafdísar á Instagram, þar sem hún skrifaði meðal annars: „Þetta úrslitaeinvígi braut mig.“ Hafdís varð fyrir fordómum á grundvelli kynhneigðar sinnar.
„Þetta úrslitaeinvígi braut mig“
„Þessi ömurlega framkoma stuðningsmannasveitar ÍBV sem veittist að leikmönnum Hauka og Vals með niðrandi hætti, líkamssmánun og ósmekklegum fordómum í garð samkynhneigðra er svartur blettur á annars flottri úrslitakeppni. Þessi hegðun er óásættanleg. Hér þarf að bregðast við. Við sem samfélag höfum á ákveðinn hátt brugðist,“ skrifaði Arnar.
Í tilfelli Emblu gerðust stuðningsmenn ÍBV sekir um líkamssmánun.
„Eftir áratuga árangur í jafnréttismálum hefur orðið bakslag í baráttu minnihlutahópa. Hatursorðræða, þar sem ráðist er að einstaklingi eða hópi á grundvelli kynþáttar, litarhafts, trúar, kyns eða kynhneigðar er því miður vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi þökk sé ákveðnum pólitískum öflum og lýðskrumurum,“ heldur Eyjamaðurinn Arnar áfram.
Pistil landsliðsþjálfarans má lesa í heild sinni hér:



