Claus Møller Jakobsen, fyrrverandi landsliðsmaður Danmerkur og núverandi sérfræðingur hjá TV2 Sport í heimalandinu, vandar Alfreð Gíslasyni þjálfara þýska karlalandsliðsins ekki kveðjurnar eftir að Þýskaland tapaði tvisvar fyrir Danmörku í nýafstöðnu landsleikjahléi.
Þýskaland tapaði 28:36 fyrir Danmörku í Kaupmannahöfn á föstudag og svo 29:31 í Köln á sunnudag. Í síðari leiknum í Köln var Danmörk án nokkurra lykilmanna.
„Mér þykir það mikið áhyggjuefni að Alfreð Gíslason hafi ekki lært nokkurn skapaðan hlut frá lokakeppni Evrópumótsins í janúar um það hvernig hann eigi að láta lið sitt spila eins og lið. Liðið er mun lakara en á EM,“ sagði Møller Jakobsen í útsendingu TV2 Sport eftir síðari leikinn.
Aukaleikarar í fjölleikahúsi Knorrs
Hann sagði sóknarleik Þýskalands svo snúast í of miklum mæli um leikstjórnandann Juri Knorr.
„Þegar Juri Knorr er á vellinum snýst allt í kringum Juri Knorr og allir aðrir verða aukaleikarar í fjölleikahúsi Knorrs.“
Samningur Alfreðs rennur út að loknu HM 2027 í Þýskalandi í janúar næstkomandi. Sér Møller Jakobsen ekki nokkra ástæðu fyrir því að framlengja við íslenska þjálfarann þar sem hann sjái ekkert ákveðið leikplan og að ekkert bendi til þess að ungir leikmenn liðsins séu að þróa leik sinn undir stjórn Alfreðs.



