„Ég er gríðarlega vonsvikin út í niðurstöðu HSÍ. Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi,“ segir Hafdís Renötudóttir landsliðskona og markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals í viðtali við Sýn/Vísir. Hafdís er mjög ósátt við það hvernig HSÍ og aganefnd tóku á fordómum vegna kynhneigðar í hennar garð í úrslitaeinvígi Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik fyrr í þessum mánuði. HSÍ hafi langt í frá stigið nógu fast til jarðar í málinu.
Hafdís segir 150 þúsund kr. sekt sem handknattleiksdeild ÍBV var gert að greiða vegna fordóma stuðningsmanna vera alltof lága. Sektin sendi alls ekki nógu sterk skilaboð inn í umræðuna um fordóma.
Sjá einnig: „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“
Þurft mikið hærri refsingu
„Það hefði þurft að koma miklu hærri refsing til þess að sýna fordæmi vegna þess að nú er búið að gefa það út í kosmósið að þetta sé í lagi vegna þess að 150 þúsund krónur er upphæð sem ég get borgað hundrað sinnum. Það er ekki neitt. Það hefði þurft að vera ein góð refsing svo svona komi aldrei aftur fyrir,“ segir Hafdís enn fremur í viðtali við Sýn/Vísir.
Hafdís á eftir að funda með stjórnendum HSÍ vegna málsins til þess að leita frekari skýringa á því hvernig sambandið hyggst taka á málum sem þessu þegar fram líða stundir og hvers vegna ekki var tekið fast á málinu á dögunum.
Nánari umfjöllun hjá Vísir: Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“
Sjá einnig:
ÍBV fékk 150 þús. kr sekt – framkoman er vítaverð og ósæmileg
Arnar landsliðsþjálfari: Ömurleg framkoma stuðningssveitar ÍBV


