- Auglýsing -
Hergeir Grímsson, fyrirliði karlaliðs Selfoss í handknattleik var í gær, útnefndur íþróttakarl Ungmennafélagsins Selfoss árið 2021.
„Hergeir hefur sannað sig sem einn besti leikmaður deildarinnar í sinni stöðu á báðum endum vallarins og var einnig í lykilhlutverki í Evrópuleikjum Selfoss í haust. Hergeir var markahæsti leikmaður Selfoss á síðasta keppnistímabili ásamt því að vera valinn sóknarmaður ársins á lokahófi deildarinnar síðastliðið sumar,“ segir m.a. í rökstuðningi fyrir valinu á Hergeiri.
Frjálsíþróttakonan Eva María Baldursdóttir var valin íþróttakona Ungmennafélagsins Selfoss 2021.
- Auglýsing -