Gríðarleg ásókn var í landsliðstreyjur HSÍ meðan á Evrópumótinu í handknattleik stóð í janúar og seldust nánar allar treyjur upp. Þó nokkurn tíma hefur tekið að endurnýja lagerinn, sérstaklega vegna erfiðleika með flutninga á treyjunum en nú eru þær loksins komnar aftur í sölu, segir í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands.
Þar segir ennfremur: „Allar stærðir af bláu landsliðstreyjunni eru til í netverslunni en auk þess er búið að bæta við svörtum markvarðatreyjum landsliða HSÍ og eru þær til í 152, 162, small, medium og large stærðum (ath að þetta eru karlastærðir, þessir búningar eru ekki framleiddir í kvennasniði).
Stuttbuxur munu bætast við í lok næstu viku í barnastærðum.“
Slóðin á netverslun HSÍ er https://www.hsi.is/shop/