- Auglýsing -
Barna- og unglingaráð handknattleiksdeildar Gróttu gaf á dögunum öllum markvörðum yngri flokka höfuðhlífar sem notaðar verða á æfingum og leikjum. Hlífarnar eru frá fyrirtækinu SecureSport.
Með höfuðhlífunum eykst öryggi markvarða Gróttu til muna en því miður fá markverðir á stundum boltann í höfuðið í æfingum og í keppni.
Hver markvörður á sína höfuðhlíf.
Á myndinni að ofan má sjá kampakáta markverði 3. og 6. flokks hjá Gróttu með nýju hlífarnar sínar sem verja þá fyrir alvarlegum höfuðhöggum.
- Auglýsing -