Nýja landsliðstreyja landsliðanna í handknattleik sem kom til landsins fáeinum dögum fyrir jól var nánast rifin út úr vefverslun HSÍ eftir því sem fram kemur í tilkynningu. Þar segir að salan hafi farið fram úr björtustu vonum og nú blasir við sú staðreynd að aðeins tvær stærðir eru eftir. Ekki er von á fleiri treyjum til Íslands áður en íslenska karlalandsliðið í handknattleik hefur leik á HM 12. janúar í Kristianstad í Svíþjóð.
Sem stendur eru aðeins tvær stærðir til í vefverslun HSÍ, XL og XXL í kvennasniði.
Von er á sendingu af treyjum til Svíþjóðar áður en íslenska landsliðið hefur leik þar á HM og verður sala á henni á samkomustað stuðningsmanna íslenska landsliðsins í Kristianstad og síðar í Gautaborg, segir ennfremur í tilkynningu frá HSÍ en þar á bæ hafa menn ekki kynnst annarri eins aðsókn í landsliðstreyjuna og nú er.
Eins og áður hefur komið fram er reiknað með þúsundum Íslendinga á leikina á heimsmeistaramótinu. Ljóst virðist að blátt haf verður í áhorfendastúkunum í Kristianstad og í Gautaborg og vonandi einnig í Stokkhólmi þegar hitnar enn frekar í kolunum á endaspretti HM.