Lokahóf handknattleiksdeildar Fram var haldið á föstudaginn, hið fyrsta eftir að félagið flutti bækistöðvar sínar upp í Úlfarsárdal. Flutningurinn mun ekki hafa komið niður á kátínu og gleði Framara sem skemmtu sér konungslega.
Veittar voru viðurkenningar til nokkurra leikmanna sem þóttu vera fremstir meðal jafningja á leiktíðinni sem er að baki. Perla Ruth Albertsdóttir og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliðanna.
Meistaraflokkur kvenna:
Efnilegasti leikmaðurinn – Valgerður Arnalds.
Mikilvægasti leikmaðurinn – Steinunn Björnsdóttir.
Besti leikmaðurinn – Perla Ruth Albertsdóttir.
Meistaraflokkur karla:
Bjartasta vonin – Kjartan Þór Júlíusson.
Efnilegasti leikmaðurinn – Reynir Þór Stefánsson.
Mikilvægasti leikmaðurinn – Stefán Darri Þórsson.
Besti leikmaðurinn – Gauti Hjálmarsson.
FRAM U kvenna:
Mikilvægasti leikmaðurinn – Ingunn María Brynjarsdóttir.
Besti leikmaðurinn – Valgerður Arnalds.
FRAM U karla:
Haukur í horni – Tindur Ingólfsson.
Besti leikmaðurinn – Eiður Rafn Valsson.
Viðurkenning fyrir leiki:
Lárus Helgi Ólafsson 100 leikir.
Svala Júlía Gunnarsdóttir 100 leikir.
Fleiri lokahóf félaga á síðustu dögum:
Hildur og Birgir Örn best hjá FH – myndir
Lokahóf á Selfossi: Katla María og Einar best – myndir
Viðurkenningar voru veittar á lokahófi Gróttu
Lokahóf Víkings – myndir – Ída og Jóhann valin best