- Auglýsing -
- Auglýsing -

Lokahóf Víkings – myndir – Ída og Jóhann valin best

F.v.: Igor Mrsulja, Ída Bjarklind Magnúsdóttir, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, Halldór Ingi Óskarsson, Marinó Gauti Gunnlaugsson, Benedikt Emil Aðalsteinsson, Sigurður Páll Matthíasson. Fyrir framan f.v.: Hafdís Shizuka Iura, Díana Ágústsdóttir. Mynd/Víkingur
- Auglýsing -

Meistaraflokkar Víkings í handknattleik slógu botninn í keppnistímabilið með samkomu í félagsheimilinu í Safamýri á föstudagskvöldið þar sem keppnistímabilið var gert upp og viðurkenningar veittar til leikmanna sem taldir voru fremstir meðal jafningja. Einnig var snæddur matur og staðar og stundar notið í góðra félaga hópi.

Karlalið Víkings endurheimti í sæti í Olísdeild á næstu leiktíð eftir æsilegt umspil á móti Fjölni. Ungmennlið Víkings flytur upp úr 2. deild og í Grill 66-deildina. Kvennalið Víkings hafnaði í sjötta sæti í Grill 66-deild kvenna og átta liða úrslit í Poweradebikarnum.

Eftirtaldir hlutu viðurkenningar í lokahófinu:

Besti leikmaður meistaraflokks karla:
Jóhann Reynir Gunnlaugsson.

Besti varnarmaður meistaraflokks karla:
Halldór Ingi Óskarsson.

Besti sóknarmaður meistaraflokks karla:
Gunnar Valdimar Johnsen.

F.v.: Igor Mrsulja, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari karlaliðs Víkings, Marinó Gauti Gunnlaugsson, Halldór Ingi Óskarsson, Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari. Mynd/Víkingur

Framfaraverðlaun meistaraflokks karla:
Igor Mrsulja.

Efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla:
Marinó Gauti Gunnlaugsson.

Besti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Ída Bjarklind Magnúsdóttir.

Besti varnarmaður meistaraflokks kvenna:
Auður Brynja Sölvadóttir.

Besti sóknarmaður meistaraflokks kvenna:
Hafdís Shizuka Iura.

F.v.: Díana Ágústsdóttir, Hafdís Shizuka Iura, Ída Bjarklind Magnúsdóttir og Jón Brynjar Björnsson þjálfari meistaraflokksliðs kvenna. Valgerður Elín Snorradóttir og Auður Brynja Sölvadóttir voru fjarverandi. Mynd/Víkingur

Framfaraverðlaun meistaraflokks kvenna:
Díana Ágústsdóttir.

Efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Valgerður Elín Snorradóttir.

F.v.: Arnar Gauti Grettisson þjálfari U-liðs karla hjá Víking, Benedikt Emil Aðalsteinsson og Sigurður Páll Matthíasson. Mynd/Víkingur

Besti leikmaður U-liðs karla:
Sigurður Páll Matthíasson.

Mikilvægasti leikmaður U-liðs karla:
Benedikt Emil Aðalsteinsson.

Lokahóf fleiri félaga síðustu daga:

Hildur og Birgir Örn best hjá FH – myndir

Lokahóf á Selfossi: Katla María og Einar best – myndir

Viðurkenningar voru veittar á lokahófi Gróttu

Hildur og Ólafur best hjá ÍR

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -