Eftir vel heppnað Ragnarsmót í handknattleik kvenna í síðustu viku þá hefst Ragnarsmótið í karlaflokki í kvöld í Sethöllinni á Selfossi. Sex lið eru skráð til leiks en fjögur þeirra verða í eldlínunni í kvöld. Þátttökulið eru Grótta, ÍBV, ÍR, KA, Selfoss og Víkingur.
Leikið verður einnig á miðvikudag, fimmtudag, föstudag og á laugardag þegar leikið verður um sæti.
Leikur kvöldsins í Sethöllinni:
Kl. 20: Víkingur – Grótta.
Uppfært klukkan 16.20: Viðureign Selfoss og ÍBV sem átti að hefjast klukkan 18 hefur verið frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Hún fer fram síðar í vikunni.
35. árið í röð
Ragnarsmótið fer nú fram í 35. skipti til minningar um Ragnar Hjálmtýsson.
Að vanda eru frír aðgangur á leikina. Einnig verða útsendingar frá öllum leikjum hjá Selfoss TV. Selfoss TV er að finna á youtube.
Handbolti.is mun einnig gefa mótinu gætur.
Frekari upplýsingar um leikjadagskrá er að finna hér.