- Auglýsing -
- Handbolti.is hefur aldrei verið meira lesinn en í janúar 2024. Handbolti.is fékk rúmlega 230 þúsund heimsóknir í mánuðinum sem er um 20% fleiri en í janúar 2023 þegar fyrra aðsóknarmet var sett. Í janúar 2023 voru keyptar birtingar á efni handbolta.is hjá Facebook en í janúar 2024 var það ekki gert. Þar gerir árangurinn í nýliðnum janúar enn athyglisverðari.
- Ríflega 76 þúsund stakar IP-tölur heimsóttu handbolta.is í janúar 2024 sem er um 35% meira en hæsti mánuður til þessa.
- Þetta er í fyrsta sinn síðan handbolti.is fór í loftið í tíð núverandi eigenda 3. september 2020 sem heimsóknir fara yfir 200 þúsund í einum mánuði. Flettingar hafa einnig aldrei verið fleiri en í janúar 2024 eða nærri 380 þúsund.
- Þessi árangur náðist þrátt fyrir að íhaldssemi ríki í fréttaskrifum og framsetningu efnis svo sumum hefur þótt nóg um.
- Ekki er aðeins um um 20% aukningu í lestri frá janúar 2023 heldur um nærri tvöföldum á heimsóknum frá janúar 2022 þegar þær voru tæplega 117 þúsund og íslenska karlalandsliðið stóð í stórræðum eins og nú. Heimsóknir voru þrefalt fleiri í janúar 2024 en í janúar 2021.
- Vöxturinn er í takti við hvert ár til þessa í sögu handbolta.is. Heimsóknir og flettingar hafa aukist um 40 til 50 af hundraði ár hvert.
- Takk fyrir okkur, kæru lesendur.
- Þriðja stórmótið í röð naut handbolti.is krafta Hafliða Breiðfjörð ljósmyndara og eiganda fotbolti.net. Framlag hans í myndum er nær ómetanlegt og á mjög stóran þátt í fjölda heimsókna.
- Janúar er einnig útgjaldahæsti mánuður ársins í útgáfunni. Það kostar sitt að vera með tvo menn á stórmóti í Evrópu í nærri þrjár vikur.
- Útgefendur þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir að kaupa auglýsingar í janúar og gera það kleift að mögulegt var að fylgja íslenska landsliðinu eftir á EM 2024. Sum fyrirtækjanna hafa verið samherjar handbolta.is frá upphafi.
- JAKO – Björgvin Þór Rúnarsson fasteignasali hjá Fasteingaland – Vellir sportbar – Olís og OB – Dineout – VGH – Ísfugl – Beiersdorf – Nivea – Sérefni – BK kjúklingur – Mýflug – Parki – Hraðfrystihús Hellissands – VSV – Done – KG Sendibílar – Skyn/Gebo – Handknattleikssamband Íslands.
- Einnig þökkum við og hugsum með hlýhug til einstaklinga og fyrirtækja sem styrkja útgáfuna með mánaðarlegum eða reglubundnum framlögum.
Ívar Benediktsson, [email protected].
Kristín B. Reynisdóttir, [email protected].
- Auglýsing -