- Auglýsing -
Alls hafa níu þjálfarar stjórnað Valsliðinu í Evrópuleikjum. Af þeim eru sex „heimamenn“ og þrír aðkomumenn; KR-ingarnir Reynir Ólafsson og Hilmar Björnsson, og Pólverjinn Stanislav Modrovski.
Þess má geta að níu þjálfarar hafa stýrt FH-liðinu og hafa þeir allir verið heimamenn nema einn, aðkomumaður að norðan; Halldór Jóhann Sigfússon.
Haukar hafa einnig verið með níu þjálfara, en aðeins þrjá uppalda Haukamenn; Viðar Símonarson, Aron Kristjánsson og Halldór Ingólfsson.
Valur mætir CS Minaur Baia Mare í undanúrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik á Hlíðarenda á sunndaginn. Um er að ræða fyrri viðureign liðanna. Flautað verður til leiks klukkan 19.30.
Miðasala á Stubb.is – smellið hér.
- Auglýsing -