- Auglýsing -
- Kristján Gunnþórsson hefur á ný gengið til liðs við handknattleikslið Þórs eftir veru hjá KA. Kristján er örvhent skytta og bætist í vaskan hóp Þórsliðsins sem hefur styrkst talsvert frá síðustu leiktíð, m.a. með komu Odds Gretarssonar, Hafþórs Más Vignissonar og Þórðar Tandra Ágústssonar, svo dæmi séu tekin.
- KA vann Þór, 32:27, á Opna Norðlenska-mótinu í handknattleik karla í KA-heimilinu í gærkvöld. HK og Selfoss eigast við í KA-heimilinu í kvöld kl. 18. Sigurliðið mætir KA á morgun en tapliðið leikur við Þór um 3. sætið. Frekar upplýsingar um leikinn í gærkvöld lágu ekki á lausu seint í gærkvöld.
- Haukar töpuðu fyrir danska úrvalsdeildarliðinu København Håndbold, 39:15, í 1. umferð æfingamóts (Annliz cup) í handknattleik kvenna í Skövde í Svíþjóð í gær. Haukar mæta Skövde HF á morgun og leika um sæti á sunnudaginn.
Karlar – helstu félagaskipti 2024
Konur – helstu félagaskipti 2024
Þjálfarar – helstu breytingar 2024
- Auglýsing -