- Auglýsing -
- Auglýsing -

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla – eitthvað fyrir þig?

- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá Afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla

Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla er fyrir þig!

Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið fyrir alla nemendur sem stunda skipulagðar keppnisíþróttir undir handleiðslu þjálfara. Námið er að mestu verklegt þar sem boðið er upp á sérstakar tækniæfingar í völdum íþróttagreinum þar sem fjöldi og aðstæður leyfa (fótbolti, handbolti, golf og íshokkí svo dæmi séu tekin). Nemendur úr öðrum íþróttagreinum fá líkamlegar styrk- og þolæfingar ásamt sérstaklega smíðuðum verkefnum og utanumhald.

Kennsla fer öll fram innan skóladagsins við frábærar aðstæður í Egilshöll.

Markmið afreksíþróttasviðs er að bjóða upp á nám sem styður við þarfir íþróttafólks á framhaldsskólastigi. Í því felst æfingar á skólatíma, sveigjanleika til ástundunar keppni og æfinga með félagsliði og landsliðum, faglegan stuðning og þjónustu við nemendur.

Nemendur sækja um skólavist á bóknámsbraut rafrænt í gegnum Menntagátt (vefur Menntamálastofnunar). Einnig þarf að sækja sérstaklega um á umsóknareyðublaði fyrir afreksíþróttasvið fyrir auglýstan frest hverju sinni.

Allar nánari upplýsingar veitir,
Arnór Ásgeirsson
Verkefnastjóri afreksíþróttasviðs
Tölvupóstur: arnor.asgeirsson@borgo.is

Lesa má nánar um afrekssviðið á heimasíðu skólans https://www.borgo.is/namid/afrekid 

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -