- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Afþakkaði góð boð – fer frá toppliði í næst efstu deild

- Auglýsing -

Danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson hefur tekið ákvörðun um að leika með næst efstu deildarliðinu HØJ í heimalandi sínu á næstu leiktíð. Ákvörðun hans kemur mörgum á óvart þótt það hafi legið fyrir síðan í vetur að Andersson hafi samið við liðið. Reiknað var með að hann nýtti sér ákvæði samningsins um að róa á önnur mið þegar HØJ féll úr úrvalsdeildinni á dögunum, þvert á það sem lagt var upp með í haust.

Andersson varð þýskur meistari með Füchse Berlin fyrir ári og bikarmeistari í vor.


Danskir fjölmiðlar segja frá því að Andersson hafi staðið til boða að leika áfram með Füchse Berlin eins og undanfarin sex ár. Einnig hafi Aalborg Håndbold og GOG boðið Andersson samning þegar fyrir lá að HØJ biði þau örlög að leika í næstefstu deild.

Andersson fylgir þar með í fótspor landsliðsmarkvarðarins Jannick Green og mun prýða leikmannahóp HØJ á næstu leiktíð ásamt hópi annarra öflugra leikmanna. Óvíst er hver þjálfar liðið. Það hafði tvo þjálfara á síðustu leiktíð. Treglega hefur gengið að finna frambærilegan mann í starfið, enn sem komið er.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -