- Auglýsing -
Auður Brynja Sölvadóttir og Jovan Kukobat voru valin bestu leikmenn Víkings á nýliðinni leiktíð. Uppskeruhátið og lokahóf handknattleiksdeildar félagsins var haldið á dögunum þar sem veittar voru viðurkenningar til leikmanna.
„Gríðarlegur metnaður og stemning er hjá leikmönnum og þjálfurum fyrir næstu vertíð sem er að skila sér í styrkingu beggja liða,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeild Víkings en nöfn verðlaunahafa má sjá hér að neðan.
Meistaraflokkur karla 2021-2022
Besti leikmaður:
Jovan Kukobat.
Besti sóknarmaður:
Jóhann Reynir Gunnlaugsson.
Besti varnarmaður:
Jóhannes Berg Andrason.
Mikilvægasti leikmaður:
Andri Dagur Ófeigsson.
Mestu framfarir:
Halldór Ingi Óskarsson.
Meistaraflokkur kvenna 2021-2022
Besti leikmaður:
Auður Brynja Sölvadóttir.
Besti sóknarmaður:
Auður Brynja Sölvadóttir.
Besti varnarmaður:
Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir.
Mikilvægasti leikmaður:
Arna Þyrí Ólafsdóttir.
Mestu framfarir:
Ester Inga Ögmundsdóttir.
- Auglýsing -