- Auglýsing -
- Auglýsing -

Bikarveisla yngri flokka í beinni útsendingu

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá Símanum:

HSÍ í samstarfi við Símann mun sýna frá öllum úrslitaleikjum í bikarkeppni yngri flokka í Handboltapassanum í Sjónvarpi Símans dagana 8. – 10. mars. Sýnt verður frá leikjum 6. flokks og upp í 3. flokk í bæði kvenna- og karlaflokkum og þannig munu áhorfendur geta fylgst með framtíðarstjörnum Íslands leika fyrir framan fjölmenni í Laugardagshöll.

„Það er afskaplega ánægjulegt að gefa ungum handboltaiðkendum pláss í sjónvarpinu og þannig kannski upplifa drauma sína. Við gerum ekki aðeins ráð fyrir frábærum handboltatöktum heldur miklu og dreifðu áhorfi því mörg lið utan höfuðborgarsvæðisins mæta til leiks og þannig geta foreldrar, systkini, ömmur, afar ofl. notið þess að horfa og styðja sitt lið úr sófanum í heimabyggð,“ segir Birkir Ágústsson dagskrárstjóri innlendrar dagskrár hjá Símanum.

Leikirnir fara fram, eins og áður segir næstkomandi helgi og eru spilaðir í Laugardalshöllinni.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir unga leikmenn í íslenskum handbolta. Það dreymir öllu íþróttafólki um að spila alvöru úrslitaleik í beinni útsendingu,“ segir Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik.

Leikjadagskrá:

8. marskl.18.004.fl.ka.Afturelding – Haukar
8. marskl.20.004.fl.kv.ÍBV – Stjarnan
9. marskl. 09.006.fl.ka.yngriÍBV 1 – HK Kór 1
9. marskl. 09.456.fl.kv.yngriValur 1 – Grótta/KR 1
9. marskl. 10.306.fl.kv.eldriKA/Þór 1 – Fram 1
9. marskl. 11.156.fl.ka.eldriGrótta/KR 1 – FH 1
10. marskl.9.005.fl.ka.yngriKA 1 – Stjarnan 1
10. marskl.10.005.fl.kv.yngriSelfoss 1 – HK 1
10. marskl.11.005.fl.ka.eldriFH 1 – ÍR 1
10. marskl.12.005.fl.kv.eldriSelfoss – Valur
10. marskl.13.303.fl.kv.Valur – Fram
10. marskl.15.303.fl.ka.KA – Fram
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -