Henrik Møllgaard, fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsfyrirliði, verður aðstoðarþjálfari stórmeistaralandsliðs Danmerkur í handknattleik karla. Frá þessu segir á vef TV2 í Danmörku. Møllgaard er 41 árs gamall og er sem stendur aðstoðarþjálfari franska meistaraliðsins PSG.
Møllgaard lék sinn síðasta landsleik í...
Josip Sarac, leikmaður Tatabánya KC í Ungverjalandi, hefur verið greindur með hvítblæði. Sarac er króatískur landsliðsmaður og vann meðal annars til silfurverðlauna með liðinu á EM 2020.
Þessu greinir pólski handboltablaðamaðurinn Maciej Wosz á X-aðgangi sínum og getur þess að...
Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða.
Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi...
Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, vakti í gær athygli á ansi óvenjulegu marki sem var skorað í ungmennaflokki karla í Hondúras á dögunum.
„Er þetta frumlegasta mark sem þið hafið séð?“ var spurt á samfélagsmiðlum IHF og voru viðbrögðin misjöfn.
Í athugasemdakerfinu voru nokkrir...
Eiður Rafn Valsson, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Hann er uppalinn Framari og varð Íslands- og bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili.
Eiður Rafn er tvítugur hægri hornamaður sem hefur átt...
Íslenska landsliðið mun hefja keppni á upphafsdegi Evrópumóts kvenna í handknattleik 3. desember. Fyrsti andstæðingurinn af þremur í riðlakeppninni verður landslið Slóveníu. Dregið var í riðla lokakeppninnar og hafnaði Ísland í riðli sem leikinn verður í Oradea í vesturhluta...
Gunnar Steinn Jónsson er á meðal þeirra sem koma til greina í þjálfarateymi karlaliðs IFK Kristianstad. Þjálfarinn Anders Hallberg tekur við þjálfun SL Benfica í sumar og íhugar Mats Samuelsson, íþróttastjóri félagsins nú næstu skref.
Frá þessu er greint í...
Elias Ellefsen á Skipagøtu, fremsti handknattleiksmaður Færeyinga um þessar mundir, getur ekki leikið með landsliði sínu í leikjunum mikilvægu við Bosníu í umspili fyrir heimsmeistaramótið um miðjan næsta mánuð. Elias hefur ekki enn jafnað sig af axlarmeiðslum sem hann...
Fjórða viðureign Hauka og FH í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik verður háð í kvöld í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. Flautað verður til leiks klukkan 19.
FH hefur tvo vinninga en Haukar einn. Síðarnefnda liðið þarf á sigri að...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum.
Leikir úrslitakeppninnar eru sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
Grótta hrósaði sigri í fyrsta úrslitaleiknum við Stjörnuna í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld í Hekluhöllinni í Garðabæ. Lokatölur voru 23: 21. Elísabet Ása Einarsdóttir innsiglaði sigur Gróttu átta sekúndum fyrir leikslok. Næsta viðureign liðanna fer...
Hér fyrir neðan er leikjadagskrá umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik sem hófst sunnudaginn 29. mars. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem keppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.
Leikir umspilsins verða sendir út á Handboltapassanum.
Úrslit
16. apríl: Stjarnan - Grótta...
Einar Bragi Aðalsteinsson lék við hvern sinn fingur í kvöld og lagði grunn að sigri IFK Kristianstad á HF Karlskrona, 41:35, í fjórðu og síðustu viðureign liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Einar Bragi skoraði...
Sigurganga lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik hélt áfram í kvöld þegar liðið vann Leipzig, 37:31, í Leipzig. Heimaliðsins bíður hins vegar áframhaldandi lífróður fyrir áframhaldandi veru í deildinni. Liðið rekur lestina af...
Theresa Claesson Andreasson, sænsk fyrrverandi landsliðskona, er látin 54 ára að aldri. Claesson Andreasson var margreynd og lék alls 89 A-landsleiki og skoraði í þeim 229 mörk undir lok síðustu aldar og í upphafi þessarar.
Sænska handknattleikssambandið greindi frá og...