- Auglýsing -
- Auglýsing -

A-landslið kvenna

- Auglýsing -

Leikdagar og leiktímar EM kvenna staðfestir

Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur staðfest leikdaga og leiktíma íslenska landsliðsins í riðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í byrjun desember. Tveir leikir íslenska landsliðsins hefjast klukkan 15.30 að íslenskum tíma og síðasti leikur riðlakeppninnar, við Ungverja, byrjar klukkan 18. 3. desember:...

Fyrsti leikur Íslands á upphafsdegi EM – miðasala er hafin

Íslenska landsliðið mun hefja keppni á upphafsdegi Evrópumóts kvenna í handknattleik 3. desember. Fyrsti andstæðingurinn af þremur í riðlakeppninni verður landslið Slóveníu. Dregið var í riðla lokakeppninnar og hafnaði Ísland í riðli sem leikinn verður í Oradea í vesturhluta...

Íslenska landsliðið leikur í Rúmeníu á EM kvenna

Íslenska landsliðið dróst í A-riðil með Ungverjum, Svartfellingum og Slóvenum í lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik sem fram fer 3. til 20. desember. Leikir í riðli Íslands verða leiknir í Oradea í Rúmeníu. Ísland var í fjórða og neðsta styrkleikaflokki...
- Auglýsing -

Ísland í neðsta flokki þegar dregið verður í riðla EM á fimmtudag

Ísland verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í Katowice í Póllandi síðdegis næsta fimmtudag. Nöfn 24 þjóða verða í skálunum sem dregið verður úr og hefur þeim verið deilt...

Ánægður með árangurinn – mjög stoltur af stelpunum

„Ég er virkilega glaður að þetta tókst hjá okkur og er um leið mjög stoltur af stelpunum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik þegar handbolti.is náðu aðeins á hann eftir sigurinn á Portúgal á Ásvöllum síðdegis. Sigurinn tryggði...

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lauk í dag, sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið var í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja...
- Auglýsing -

Fimm þjóðir til viðbótar tryggðu sér sæti á EM 2026

Ásamt Íslandi tryggðu fimm þjóðir til viðbótar sér þátttökurétt á EM 2026 í lok ársins þegar undankeppninni lauk í dag. Þær eru Serbía, Austurríki, Grikkland, Úkraína og Norður-Makedónía. Serbía tryggði sæti sitt með 30:21 sigri á Úkraínu í 5. riðli...

Ísland á EM með glæsibrag – stórsigur á Portúgal

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér í dag sæti á EM 2026, sem fer fram í fimm löndum í desember, með því að leggja Portúgal örugglega að velli, 32:24, í lokaumferð 4. riðils undankeppninnar á Ásvöllum. Ísland hafnar í þriðja...

Erum staðráðnar í að nýta þetta tækifæri

Fyrirliði landsliðsins, Sandra Erlingsdóttir, segir mikla eftirvæntingu ríkja innan leikmannahópsins vegna viðureignarinnar við Portúgal í lokaumferð undankeppni Evrópumótsins. Allar séu staðráðnar í að vinna viðureignina og tryggja sér þátttökurétt á öðru Evrópumótinu í röð. Leikur Íslands og Portúgals hefst...
- Auglýsing -

Verður geggjað að spila fyrir framan fulla höll af áhorfendum

„Við höfum farið vel yfir það sem betur mátti fara í leiknum við Færeyinga og erum staðráðnar í að gera betur og vinna úrslitaleikinn sem fram undan er,“ segir Elín Rósa Magnúsdóttir landsliðskona í handknattleik sem mætir með stöllum...

Leikið verður til sigurs

„Þetta eru leikirnir sem við viljum og þurfum að fá og lærum hvað mest af,“ segir Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik um væntanlega viðureign við Portúgal á morgun á Ásvöllum í lokaumferð Evrópukeppni kvenna í handknattleik. Viðureignin, sem...

Átján lið búin að tryggja farseðilinn á EM 2026 – bætist Ísland í hópinn?

Alls eru 18 lið af 24 búin að tryggja sér sæti á EM 2026 í handknattleik kvenna sem fer fram í lok ársins í fimm löndum; Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi. Lokaumferð undankeppninnar fer öll fram á sunnudaginn...
- Auglýsing -

Úrslitaleikur hjá kvennalandsliðinu á sunnudaginn

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna fer í úrslitaleik við Portúgal á sunnudaginn um mögulegt sæti í lokakeppni Evrópumóts. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Svartfellingar unnu Portúgala, 34:26, í Matosinhos í Portúgal í kvöld. Íslenska landsliðið þarf að vinna...

Sandra er sú fjórtánda sem skorar 200 mörk fyrir landsliðið

Sandra Erlingsdóttir varð í gær sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk íslenska landsliðið í handknattleik. Með sjö mörkum í tapleiknum, 35:30, fyrir Færeyingum í þjóðarhöllinni, Við Tjarnir, náði fyrirliðinn 200. markinu á landsliðsferlinum í 48. landsleiknum. Thea skoraði...

Vorum í vandræðum í alltof mörgum þáttum leiksins

„Það eru mikil vonbrigði að tapa þessum leik þótt það sé engin skömm að tapa fyrir færeyska landsliðinu á heimavelli þess. Færeyska liðið er sterkt en það er svekkjandi hvernig við fórum í gegnum leikinn,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -