Á samfélagsmiðlum Evrópumótsins í handknattleik er mögnuð stoðsending Gísla Þorgeirs Kristjánssonar í leik Íslands gegn Ítalíu á EM 2026 í Svíþjóð í janúar rifjuð upp.
Hægt hefur verið á myndefninu þegar Gísli Þorgeir kemur boltanum listilega aftur fyrir sig á...
Ísak Steinsson markvörður Drammen og íslenska landsliðsins á bestu markvörslu ársins í norsku úrvalsdeildinni samkvæmt kosningu almennings á vefsíðunni Norsk Topphåndball. Tvöföld markvarsla Ísaks í leik gegn Fjellhammer hreif lesendur en tilþrifin má sjá í myndskeiði hér fyrir neðan.
...
Í tvíframlengdum háspennuleik FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla réðust úrslitin á dramatíkskum síðustu sekúndum. Fyrir mörgum virtist Valur hafa jafnað metin þegar 10 sekúndur voru til leiksloka þegar Daníel Montoro kom boltanum á ævintýralegan hátt fram...
Á samfélagsmiðlum Handknattleikssambands Evrópu í dag er ótrúleg markvarsla Viktors Gísla Hallgrímssonar í fræknum átta marka sigri á Svíþjóð í milliriðli á EM 2026 í Malmö rifjuð upp.
Viktor Gísli varði þá stórglæsilega frá Eric Johansson sem hafði brotist í...
Handknattleikssamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 14 í dag. Tilefni fundarins er samkvæmt tilkynningu er framtíðarsýn A landsliðs karla.
Hægt er að fylgjast með streymi frá fundinum hér fyrir neðan.
https://www.youtube.com/live/J4zIkr6nq7A
Slóvenska undrabarnið Aljuš Anžič, sem sumir kalla sem svo en hann er aðeins á átjánda ári, skoraði sigurmark RK Celje í gærkvöld, 31:30, gegn Krka í úrslitakeppninni um meistaratitilinn í Slóveníu. Anžič var ekkert að tvínóna þegar hann kastaði...
Handknattleikssamband Evrópu hefur birt fróðlegt og skemmtilegt myndskeið frá undanúrslitaviðureign Danmerkur og Íslands og á Evrópumótinu í handknattleik í lok janúar. Myndskeiðið er tekið upp með búkmyndavélum sem dómarar leiksins, Norðmennirnir Lars Jørum og Håvard Kleven voru með.
Koma fram...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru sérfræðingar þáttarins, Einar Ingi Hrafnsson og Rakel Dögg Bragadóttir, ítarlega yfir úrslitakeppni Olísdeildar karla þar sem barist verður til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn.
Í fyrstu umferð úrslitakeppninnar þarf aðeins tvo sigra til þess að...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar kvenna valið. Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, var þar útnefnd besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Hafdís átti stórbrotið tímabil, var oft og tíðum með yfir 50% markvörslu í leik og var þegar...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var úrvalslið deildarkeppni Olísdeildar karla valið. Bjarni Ófeigur Valdimarsson, vinstri skytta KA, var þar útnefndur besti leikmaður tímabilsins 2025/2026.
Bjarni Ófeigur átti magnað tímabil í deildinni og var einfaldlega óstöðvandi í sóknarleik KA-manna þar...
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var fjallað um stórsigur Fram á KA/Þór í lokaumferð Olísdeildar kvenna á sunnudag. Arna Sif Jónsdóttir, 16 ára gamall markvörður Fram, átti frábæra innkomu í leiknum.
„Hún kemur bara í markið og lokar. Hún...
Selfoss féll um helgina úr Olísdeild kvenna og niður í Grill 66 deildina eftir að hafa tapað stórt fyrir ÍR í Skógarseli í lokaumferðinni. Stjarnan gerði á sama tíma jafntefli við Hauka og komst þar með upp úr botnsætinu....
Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var farið yfir hreint lygilega dramatík undir lok leiks Hauka og Stjörnunnar í lokaumferð Olísdeildar kvenna á laugardag. Leiknum lauk með jafntefli, 26:26 eftir að Stjarnan hafði jafnað metin fjórum sekúndum fyrir leikslok.
Ótímabært...
Stjarnan tryggði sér í dag sjöunda sætið í Olísdeild kvenna þegar liðið krækti í dramatískt jafntefli gegn Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum.
Lokasekúndurnar voru hreint lygilegar þar sem Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin fjórum sekúndum fyrir leikslok með laglegu...
Botnbaráttuslagur Selfoss og Stjörnunnar í 19. umferð Olísdeildar kvenna endaði með 35:33 sigri Selfoss í Set höllinni. Með sigrinum fór Selfoss af botninum og hafði sætaskipti við Stjörnuna. Tímabilið hefur verið gríðarleg vonbrigði fyrir Stjörnuna, sem er einungis með...