- Auglýsing -
- Auglýsing -

Evrópudeild karla – 16-liða úrslit – 2. umferð, leikir og staðan

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Önnur umferð riðlakeppni 16-liða úrslita Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni með félagsliðum sínum. Úrslit leikjanna, staðan og það helsta af Íslendingunum er að finna hér fyrir neðan.

1. riðill:
RN-Löwen – Hannover-Burgdorf 27:26 (11:13).
– Ýmir Örn Gíslason leikur með Rhein-Neckar Löwen.
– Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari H. Burgdorf.

Nantes – Górnik Zabrze 31:23 (17:11)
– Viktor Gísli Hallgrímsson varði 17 skot í marki Nantes, 43,6%.

Staðan:

Nantes4301133:1166
H. Burgdorf4202124:1224
RN-Löwen4202114:1194
Górnik Zabrze4103109:1232

2. riðill:
IK Sävehof – Skjern 27:29 (12:13).
– Tryggvi Þórisson lék með IK Sävehof.

Gorenje – RK Nexe 27:27 (15:13).

Staðan:

Skjern4301132:1276
RK Nexe4211135:1135
Sävehof4112119:1203
Gorenje4022120:1362

3. riðill:
Bjerringbro/Silkeborg – Kadetten 36:30 (17:15).
– Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk fyrir Kadetten.

Vojvodina – Flensburg 26:36 (13:14).
– Teitur Örn Einarsson skoraði 4 mörk fyrir Flensburg.

Staðan:

Flensburg4301144:1116
Bj./Silkeborg4202118:1194
Kadetten4202114:1304
Vojvodina4103101:1172

4. riðill:
Dinamo Búkarest – Constanta 33:23 (16:10).

Füchse Berlin – Sporting 31:32 (19:13).
– Orri Freyr Þorkelsson skoraði 4 mörk fyrir Sporting.

Staðan:

Sporting4301129:1216
F. Berlin4301129:1236
Dinamo Búk.4103128:1242
Constanta4103109:1272


Fyrsta umferð fór fram fyrir viku. Hér fyrir neðan er hlekkur á það sem helsta sem þá gerðist:

Evrópudeild karla – 16-liða úrslit – leikir og staðan

Liðin taka með sér úrslit leikja úr riðlakeppni 32-liða úrslita sem lauk í byrjun desember. T.d. þá voru Hannover-Burgdorf og Górnik Zabrze saman í riðli í 32 liða úrslitum. Þau mætast ekki aftur þótt þau séu saman í riðli 16-liða úrslita.

Leikið verður heima og að heiman, alls fjórar umferðir. Eftir það fara sigurlið hvers riðils beint áfram í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti mætast heima og heiman. Sem dæmi má nefna er að liðið sem verður í öðru sæti í riðli eitt mætir liðinu sem verður í þriðja sæti í riðli tvö. Samanlagður sigurvegari fer í átta liða úrslit.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -